Flug er einn öruggasti ferðamáti sem til er. Það er einnig sá háttur sem mestur vöxtur er í. Því ákvað Evrópusambandið á sínum tíma að koma á fót einni sameiginlegri stofnun til að tryggja öryggi og sjálfbærni loftferða á ört vaxandi markaði. Þessi stofnun varð að veruleika og heitir Flugöryggisstofnun Evrópu (European Aviation Safety Agency).
Almennir öryggis- og umhverfisverndarstaðlar Flugöryggisstofnunar Evrópu eru þeir ströngustu sem þekkjast í Evrópu og hvar sem er í heiminum. Þeir eru kjarninn í nýju reglugerðarkerfi sem gildir fyrir sameiginlegan Evrópumarkað fyrir flug.
Vottun Airbus A380, stærstu farþegaþotu heimsins, í desember 2006, braut blað í sögu stofnunarinnar.
Helstu þættir í starfsemi hennar eru þessir:
Sífellt eru gerðar meiri kröfur til stofnunarinnar vegna aukinna þarfa ört vaxandi flugumferðar. Í framtíðinni verður komið á lögbundnum reglum um flugrekstur, leyfisveitingar áhafna og öryggisvottun flugfélaga frá löndum utan Evrópu.
Stofnunin hefur aðsetur í Köln og hjá henni starfa nú yfir 350 þjálfaðir starfsmenn víðsvegar að úr Evrópu. Stofnunun mun halda áfram að ráða sérfræðinga og stjórnendur á komandi árum jafnframt því sem hún festir sig í sessi sem fremsta stofnun Evrópu á sviði flugöryggis.
Framtíðarsýn okkar er sú að Evrópubúar búi við öruggasta og vistvænasta loftferðakerfi veraldar.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Disclaimer & Copyright Notice 2003 - 2010 easa.europa.eu |